Jurt ehf. Var stofnað árið 2015 með nýtingu auðlinda Íslands í huga, hreint ómengað vatn, loft, jarðhita og rafmagn
frá endurnýjanlegum orkugjöfum til ræktunar á hágæða afurðum.
Frá 2015 höfum við ræktað ferskt wasabi og selt undir vörumerkjum Nordic Wasabi, vara sem hefur skilað sér inn á bestu og frægustu veitingahús í heimi.
2023 hófum við ræktun á alaskaösp og erum nú þegar orðin stærsti framleiðandi landsins.
Við búum yfir einni best búnu gróðrarstöð landsins og sérhæfum við okkur í plöntum sem þykja erfiðar í ræktun.
Við eigum aspir tilbúnar til afhendingar strax á þessu ári og getum útvegað
flestar gerðir skógarplantna.
Hafið samband í síma eða tölvupósti fyrir pantanir og nánari upplýsingar.
+354 768 8158 | info@jurt.is
Hjá Jurt viljum við leggja okkar af mörkum til uppbyggingar grænna svæða og sjálfbærrar framtíðar með ræktun sterkra plantna. Við ræktum landið með virðingu fyrir náttúrunni og trú á mikilvægi skógræktar fyrir komandi kynslóðir.
Valgerðarstaðir 4, 701 Egilsstöðum